Þú talar.
Raddrit skrifar.
Íslenskt talritunarapp. Þú ýtir á flýtilykil, segir það sem þú vilt skrifa, og textinn birtist þar sem bendillinn er. Í tölvupósti, Word, Teams eða hvar sem er.
Lestu síðuna fyrst. Hún tekur þrjár mínútur og segir hvernig appið virkar, hvað fer hvert og hvernig þú getur hjálpað. Niðurhalið er neðst.
Þú ert með þeim fyrstu
Raddrit er nýtt og enn í smíðum. Þú færð fría áskrift á meðan prófunin stendur, með takmarkaðri notkun. Í stillingum sérðu hversu mikið er eftir.
Þetta er fyrsta útgáfa, svo það geta verið gallar. Þegar eitthvað klikkar er það einmitt það sem ég vil heyra.
Svona byrjarðu
- Lestu síðuna, skrifaðu boðskóðann neðst, sæktu appið og opnaðu skrána. Windows varar við því að appið sé nýtt: ýttu á More info og svo Run anyway. Á Mac færðu eina línu til að líma í Terminal.
- Skráðu nafn og netfang. Appið sýnir fjögurra stafa kóða. Sendu mér hann og ég opna fyrir þig. Viltu nota Raddrit á fleiri tölvum? Settu það upp á hverri þeirra og skráðu sama netfang. Þær deila þá sömu áskrift.
- Appið opnar stutta kennslu: þú lest tíu setningar upphátt. Það tekur þrjár mínútur og þú lærir á allt í leiðinni.
- Eftir það: settu bendilinn þar sem þú vilt skrifa, ýttu á Ctrl Shift Space og talaðu. Sami lykill stöðvar. Þú getur valið aðra lykla í stillingum. Segðu „ný lína“ til að byrja nýja línu.
Svona hjálpar þú Raddriti að verða betra
Raddrit batnar af því að sjá hvar það heyrði rétt og hvar vitlaust. Þú getur hjálpað á fimm vegu. Allt er valfrjálst, og hvert og eitt skiptir máli.
| 1. Lestu setningarnar tíu | Kennslan í byrjun. Allir prófarar lesa sömu setningar, svo ég get borið saman raddir, hljóðnema og herbergi. Þetta er það verðmætasta sem þú gefur, og þú gerir það einu sinni. |
|---|---|
| 2. Smelltu á rangt orð | Á meðan þú talar birtast orðin við hnoðrann neðst á skjánum. Sérðu rangt orð? Smelltu á það. Þá veit ég nákvæmlega hvar villan var. |
| 3. Ýttu á Senda Einari | Takkinn birtist í nokkrar sekúndur eftir hverja upptöku. Einn smellur sendir mér upptökuna og textann. Gerir þú ekkert fer ekkert. |
| 4. Farðu yfir textana | Það sem þú sendir fer á yfirferðarlista. Þar segirðu Rétt eins og það er, eða lagar textann. Stuttir textar taka nokkrar sekúndur. Þú mátt líka sleppa þeim öllum. |
| 5. Skrifaðu mér | Í Stillingar → Ábending skrifarðu hvað virkaði ekki, hvað vantar eða hvað var gott. Ég les allt. |
Viltu hjálpa sem mest? Veldu Senda allt sjálfkrafa þegar appið spyr í byrjun. Þá fer hver upptaka til mín, og þú hefur 9 sekúndur til að hætta við hverja. Byrjir þú næstu upptöku fyrr fer sú fyrri strax. Þú getur breytt þessu hvenær sem er í Stillingar → Deiling.
Takk fyrir þetta. Fagorð úr þínu starfi, sem koma vitlaust út, eru einmitt það sem Raddrit þarf að læra.
Það sem ég er að vinna í
- Lærir orðin þínFagorð, nöfn og skammstafanir sem þú notar oft.
- Hreinni textiHik og endurtekningar hverfa, meiningin stendur.
- Meira en að skrifaTölvupóstar, minnispunktar og verkbeiðnir, beint úr tali.
Þeir sem prófa núna hafa mest um það að segja hvað kemur fyrst.
Hvað fer hvert
| Til OpenAI | Allt sem þú talar inn, til að breyta því í texta. OpenAI er í Bandaríkjunum. Ekki nota Raddrit í lykilorð, kennitölur, launamál eða annað viðkvæmt. |
|---|---|
| Til mín, alltaf | Aðeins tölur: lengd upptöku, fjöldi orða, hvort textinn límdist, hvort þú afritaðir eða sendir. Enginn texti og ekkert hljóð. Eytt eftir 90 daga. Þjónninn skráir líka hvenær þú notaðir appið og hve lengi, til að telja notkunina þína. Sú skrá er geymd áfram. |
| Til mín, ef þú velur | Upptakan, textinn, orðin sem þú merktir og sérorðalistinn þinn, þegar þú ýtir á Senda Einari. Setningarnar tíu úr kennslunni. Leiðréttingar og ábendingar. Eytt eftir 90 daga. |
| Á þinni tölvu | Síðustu fimm textarnir og upptökur þeirra, og þeir sem bíða yfirferðar, svo ekkert týnist. Líka síðustu upptökur sem tókst ekki að breyta í texta. Annað gleymist. Þetta fer hvergi nema þú sendir það. |
Sækja Raddrit
Viltu prófa? Þú þarft boðskóða frá mér. Ertu ekki með kóða? Heyrðu í mér og ég sendi þér hann. Það er engin skuldbinding að skoða síðuna.
Windows 10 og 11: um 100 MB · Mac: prufuútgáfa, sett upp með einni línu í Terminal · aðeins fyrir þá sem fengu boð